Snerting frumsýnd

Fallega og ljúfsára kvikmyndin Snerting hefur verið frumsýnd.

Það var dýrmætt að fá tækifæri til að mæta Agli Ólafssyni hér í þriðja sinn á hvíta tjaldinu. Ég lék dóttur hans í Magnúsi, vinnukonuna hans í Agnesi og nú íslensku eiginkonuna hans. Þá var ekki síður gaman að vinna aftur með Balta, allt frá því að við festum stormasamt ástarsamband Agnesar og Natans á filmu.