Reykjavík 112

Glæpaþáttaröðin Reykjavík 112, byggð á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur, var frumsýnd á RÚV í haust. Þar lék ég virta vísindakonu sem verður skotmark morðingja sem er ósáttur við rannsóknir hennar.
Það er enginn annar en Snorri Þórisson sem framleiðir þættina fyrir Pegasus, en hann framleiddi einnig Agnesi, söguna af örlögum Agnesar Magnúsdóttur sem var hálshöggvin 1830 og ég lék á sínum tíma á móti Baltasar Kormáki. Snorri hafði óneitanlega hálfgert samviskubit yfir því að standa í annað sinn fyrir því að ég væri tekin af lífi á filmu, og lofaði mér því að í næsta verkefni yrði ég langlífari. :)
Þríeykið Reynir Lyngdal, Tinna Hrafnsdóttir og Óskar Þór Axelsson leikstýrði einvalaliði leikara í þessari metnaðarfullu og vönduðu framleiðslu þar sem ekkert var til sparað.
Með helstu hlutverk fóru Kolbeinn Arnbjörnsson, Vivian Ólafsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir, Þorsteinn Pálmarsson og María Ellingsen.
Handritshöfundar voru Óttar M. Norðfjörð, Björg Magnúsdóttir og Snorri Þórisson.